Ganga með forsetanum á Úlfarsfell

Úlfarsfell. Mynd úr safni.
Úlfarsfell. Mynd úr safni. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Ferðafélagið stendur fyrir vikulegum fimmtudagsgöngum á Úlfarsfellið. Að venju slæst óvæntur gestur með í för og í dag verður gesturinn enginn annar en Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.

Lagt verður af stað kl. 17:45 frá efra bílastæðinu í Úlfarsárdal. Líkt og með fyrri fimmtudagsgöngur er þátttaka ókeypis og allir velkomnir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert