Búast við að bílastæðin við flugvöllinn fyllist

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Árni Sæberg

Isavia gerir ráð fyrir því að bílastæði við Keflavíkurflugvöll muni fyllast um páskana líkt og gerðist á sama tíma fyrir ári.

Vinsælt er meðal Íslendinga að leggja land undir fót í páskafríinu og hvetur Isavia þá farþega til að bóka bílastæði við flugvöllinn fyrir brottför til að forðast það að fá ekki bílastæði við komu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

Bent er á, að nýtt bókunarkerfi fyrir bílastæði á vefsíðu Keflavíkurflugvallar eigi að tryggja farþegum stæði um páskana og sömuleiðis sé hægt að fá bílastæðin á betri kjörum en þegar greitt sé við hlið.

„Bókunarkerfinu var hleypt af stokkunum í febrúar og er liður í því að koma í veg fyrir að stæðin fyllist á álagstímum á flugvellinum. Lægsta sólarhringsverð yfir páskana er nú 990 krónur og því fyrr sem bókað er, því lægra verð fæst. Verð á sólarhring fyrir þá sem ekki bóka stæði og greiða við hlið er 1.750 krónur,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert