FG mætir Kvennó í úrslitum Gettu betur

Lið Fjölbrautaskólans í Garðabæ keppir í úrslitum Gettu betur í …
Lið Fjölbrautaskólans í Garðabæ keppir í úrslitum Gettu betur í ár. Skjáskot/Rúv

Lið Fjölbrautaskólans í Garðabæ (FG) tryggði sér í kvöld sæti í úr­slit­um Gettu bet­ur, spurn­inga­keppni fram­halds­skól­anna, eft­ir sig­ur á Mennta­skól­an­um á Akureyri (MA) í viður­eign skól­anna í undanúr­slit­um keppn­inn­ar.

Sigur FG var ljós eftir að bjölluspurningunum lauk og munurinn á liðunum orðinn 11 stig. Lokaniðurstaðan var sú að FG sigraði með 40 stigum gegn 28 stigum MA.

FG mætir Kvennaskólanum í Reykjavík í úrslitum sem fara fram að viku liðinni í Háskólabíói. 

Frétt mbl.is: Kvennaskólinn í úrslit Gettu betur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert