Handtekin vegna innbrots í verslun

mbl.is/Hjörtur

Karl á fertugsaldri og kona á þrítugsaldri eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á innbroti í verslun í Reykjavík í fyrrinótt og þjófnað á fólksbifreið.

Það var ábending árvökuls borgara sem leiddi til handtöku fólksins, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Bíllinn er jafnframt fundinn, sem og þýfi úr innbrotinu.

Lögreglan tók einnig í sína vörslu fleiri muni sem talið er að kunni að tengjast öðrum innbrotum.

Lögreglan birti myndir af fólksbílnum og ökumanni í gærkvöld og óskaði aðstoðar almennings við að upplýsa málið.

„Óhætt er að segja að viðbrögðin hafi verið góð og það leiddi til þess sem að framan er rakið, og því vill lögreglan þakka kærlega fyrir veitta aðstoð í málinu,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert