Hauks leitað sem hann væri á lífi

Haukur Hilmarsson fór til Sýrlands fyrir nokkru og er m.a. …
Haukur Hilmarsson fór til Sýrlands fyrir nokkru og er m.a. sagður hafa tekið þátt í bardögum gegn vígamönnum Ríkis íslams og síðar við hlið varnarsveita Kúrda. Af Twitter

Eva Hauksdóttir, móðir Hauks Hilmarssonar sem sagður er hafa fallið í Afrin-héraði í Sýrlandi, segir að engar áreiðanlegar heimildir séu fyrir því að sonur hennar sé látinn. „Það gæti allt eins verið að félagar hans hafi bara misst sjónar á honum og ályktað (réttilega eða ranglega) að hann hafi fallið.“

Eva fjallar um þetta í ítarlegri færslu á heimasíðu sinni, norn.is. Fer hún þar yfir allar þær upplýsingar sem hún hefur þegar fengið, m.a. frá samtökum sem Haukur barðist með. Bendir hún á ýmis vafaatriði í frásögnum af meintu falli Hauks og bendir á ýmsar eyður sem enn hafa ekki verið fylltar.

„Fyrir viku taldi ég nánast útilokað að sonur minn væri á lífi. Ég hélt hreinlega að talsmenn hreyfingarinnar sem hann vann með myndu ekki fullyrða það nema það væri hafið yfir vafa. En þegar nánar er að gætt þá virðast þeirra upplýsingar bara byggðar á sögusögnum og getgátum,“ hefur Eva skrif sín á. 

Segja tilkynnt um fallið í kjölfar fréttaflutnings

Hún segir að talsmenn útlendingahersveitarinnar International Freedom Battalion (IFB) hafi fullyrt að Hauki hefði farist í árás þann 24. febrúar. Þeir geti hins vegar ekki bent á neitt lík og sautján dögum síðar geti þeir ekki gefið tímasetningu. Hún segir talsmenn IFB halda því fram að tilkynning um fall Hauks hafi verið birt vegna þess að tyrkneskir miðlar hafi þá þegar birt frétt þess efnis. „Þeir geta ekki bent á þá heimild og hugsanlega er þetta misskilningur,“ skrifar Eva. „En hafi Tyrkir í alvöru birt frétt á undan Kúrdum þá þýðir það einfaldlega að Haukur hefur verið pyntaður til þess að gefa persónuupplýsingar sem hann gefur ekki öðrum en þeim sem hann treystir og því aðeins að góð ástæða sé til. Og ef þeir náðu honum lifandi þá er líklegt að hann sé ennþá á lífi. Hann hefur upplýsingar sem Tyrkir myndu gjarnan vilja komast yfir og hann lætur þær ekki fúslega af hendi.“

Þá segir hún talsmenn IFB segja að vitni hafi séð Hauk falla. Fyrst hafi hann átt að hafa fallið fyrir skothríð en nú segi þeir að hann hafi látist þegar sprengju var varpað á svæðið. „Vitni hljóta að gera greinarmun á þessu tvennu. Þeir hafa ekki talað við nein vitni milliliðalaust og þeir geta heldur ekki bent mér á neina sjónarvotta. Segja bara að vitni muni hafa samband við mig síðar. Það eru semsagt engar áreiðanlegar heimildir fyrir því að Haukur sé látinn. Það gæti allt eins verið að félagar hans hafi bara misst sjónar á honum og ályktað (réttilega eða ranglega) að hann hafi fallið.“

Svo spyr Eva: „Ef var enginn vafi á falli hans, af hverju var þá leitað að honum í öllum sjúkrabúðum?

Ef hann varð fyrir sprengjuregni og ekkert vafamál að hann væri látinn, af hverju fóru menn þá inn á svæðið sem verið var að bombardera? Þeir hljóta að hafa farið til að sækja særða.

Ef þetta var svona mikið á hreinu, hversvegna var þá ekki haft samband við mig? Hversvegna biðu þeir þá í 10 daga með að segja frá þessu?

Fólk sem hefur verið í Rojava segir okkur að það sé engin almennileg skýrslugerð eða utanumhald um upplýsingar hjá andspyrnuhreyfingum þar. Ég held að við getum ekki treyst því að forvígismenn IFB og YPG  [Varðsveita Kúrda] viti neitt meira en við en auk þess er síma- og netsamband við Sýrland lélegt og stopult og tungumálaerfiðleikar í þokkabót. Það eina sem við getum slegið föstu í augnablikinu er að við vitum ekki hvort Haukur er lífs eða liðinn og við verðum að leita með því hugarfari að hann sé á lífi og í lífshættu.“

Heimildir óljósar

Fyrstu fréttir af meintu falli Hauks birtust í tyrkneskum fjölmiðlum þann 6. mars, að því er mbl.is kemst næst. Þann sama dag birti IFB færslu á Facebook-síðu sinni um fall hans. Facebook-síðu samtakanna virðist ekki lengur að finna. Að minnsta kosti tveir tyrkneskir fréttamiðlar, CNN Türk  og Hürriyet, birtu fréttir af falli hans þennan dag. Í frétt CNN Türk er heimildin sögð frétt Hürriyet. Í frétt Hürriyet er ekki vísað til neinna heimilda en í enskri útgáfu fréttarinnar, sem birt er þann 7. mars, er hins vegar vísað í CNN Türk. Í báðum fréttum kemur fram að lík hans verði sent til heimalandsins „á næstu dögum“. 

Í frétt vefmiðilsins ETHA um málið þann 6. mars er vitnað til yfirlýsingar International Freedom Battalion (á tyrknesku: Enternasyonal Özgürlük Taburu). Sú yfirlýsing var birt á Facebook-síðu samtakanna þennan sama dag en síðunni virðist nú hafa verið lokað eins og fyrr segir.

Samtök sem kalla sig The Base birtu hins vegar færslu International Freedom Battalion í heild. Í henni voru m.a. nokkuð ítarlegar persónuupplýsingar um Hauk.

Twitter-færslan hér að neðan er skrifuð af Mehmet Solmaz sem er sagður fréttaritari Daily Sabah sem samkvæmt Wikipedia er tyrkneskur fjölmiðill sem styður ríkisstjórn landsins. Færslan var birt þann 6.  mars og um svipað leyti hófust að birta fréttir af meintu falli Hauks í Afrin. Í henni er ekki vísað til neinna heimilda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert