Stuðningsfulltrúinn áfram í gæsluvarðhaldi

Héraðsdómur framlengdi gæsluvarðhald yfir manninum til 13. apríl.
Héraðsdómur framlengdi gæsluvarðhald yfir manninum til 13. apríl. mbl.is/Ófeigur

Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði í dag að fyrrverandi starfsmaður Barnaverndar Reykjavíkur skuli sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi á grundvelli almenningshagsmuna. 

Maðurinn hefur setið í varðhaldi frá því að hann var handtekinn í janúar og var varðhaldsúrskurðurinn framlengdur um fjórar vikur í dag og gildir nú til 13. apríl.

Í yfirlýsingu frá lögreglu segir að rannsókn málsins hafi miðað vel áfram og að stefnt sé að því að henni ljúki fljótlega.

Í framhaldinu verði málið sent til embætti héraðssaksóknara.

Maðurinn hef­ur setið í gæslu­v­arðhaldi síðan 19. janú­ar, eða í tæpa tvo mánuði. Sam­tals hafa borist átta kær­ur á hend­ur hon­um fyr­ir kyn­ferðis­brot gagn­vart börn­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert