Fær inngöngu í virt samtök

Ragnar Jónsson við störf sín hjá tæknideild lögreglunnar.
Ragnar Jónsson við störf sín hjá tæknideild lögreglunnar. mbl.is/​Hari

Ragnari Jónssyni, rannsóknarlögreglumanni og sérfræðingi á sviði blóðferla í tæknideild lögreglunnar, var á dögunum boðin innganga í The Association for Crime Scene Reconstruction, virt samtök sérfræðinga á sviði glæpa- og vettvangsrannsókna.

Ragnar bætist þar með í hóp 200 færustu sérfræðinga á því sviði vestanhafs, að því er fram kemur í við tali við hann í Morgunblaðinu í dag.

„Þetta er stóra sviðið. Það getur ekkert hver sem er labbað þarna inn,“ segir Ragnar. Hann segir að það mikilvægasta sem þessi upphefð færi sér sé tengslanetið: „Nú er ég kominn með 200 tengiliði sem ég get sent tölvupóst eða hringt í og fengið aðstoð.“sta ári. 18

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert