Milt og vorlegt veður næstu daga

Það er svo sannarlega vor í lofti.
Það er svo sannarlega vor í lofti. mbl.is/Rax

Spár gera ráð fyrir nokkuð vorlegu veðri á landinu öllu í dag. Hiti að deginum verður 3 til 10 stig, hlýjast á suðvesturhorninu.

Smá gola verður sunnan- og vestanlands og dálítil rigning. Hægari vindur norðan heiða, þurrt og víða bjart veður. Suðlægari á morgun og áfram smávæta, en léttskýjað á NA-verðu landinu.

Veðurstofan gerir ráð fyrir því að fram eftir næstu viku verði áttin suðlæg og veður milt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert