Öryggi sjúkraflutninga áfram tryggt

mbl.is/Eggert

Öryggi sjúkraflutninga verður áfram tryggt á meðan unnið er að því að skipuleggja fyrirkomulag þjónustunnar til framtíðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu.

Rauði krossinn á Íslandi gaf út tilkynningu í gær um að samstarfi við ríkið um rekstur sjúkrabíla yrði slitið. „Í yfirlýsingu Rauða krossins um málið, dags. 16. mars 2018, kemur réttilega fram að ágreiningur hefur verið milli RKÍ og ráðuneytisins um rekstur sjúkrabílanna og eignarhald á þeim,“ segir í tilkynningu Velferðarráðuneytisins.

Þar kemur fram að ráðuneytið hafi lengi viljað breyta fyrirkomulagi reksturs sjúkrabílanna en að ekki hafi náðst sátt um málið. „Þar sem ljóst hefur verði um skeið að ekki myndi nást samkomulag í þessu máli hefur ráðuneytið unnið að því að finna rekstri bílanna annan farveg.“

Unnið er að því að reksturinn verði að öllu leyti á hendi opinberra aðila. Þannig megi best tryggja öryggi og gæði sjúkraflutninga í landinu. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir að skýrt sé af beggja hálfu að vandað verði til skilnaðarins.

„Rauði krossinn hefur fullvissað ráðuneytið um að hann muni annast rekstur sjúkrabílanna meðan þess er þörf, eða þar til ráðuneytið hefur fundið verkefninu farveg til framtíðar og ég veit að orðum Rauða krossins er óhætt að treysta. Ráðuneytið mun hraða sinni vinnu eins og kostur er til að ljúka þessu máli farsællega.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert