Vélhjólaslys í Þykkvabæjarfjöru

mbl.is/Eggert

Björgunarsveitir á Suðurlandi voru boðaðar út um fimmleytið í dag vegna vélhjólaslyss í Þykkvabæjarfjöru.

Að sögn Davíðs Más Bjarnasonar hjá Slysavarnarfélagsins Landsbjörg slasaðist þar maður á fæti.

Hann er kominn um borð í björgunarsveitarbíl og verið er að keyra hann í átt að sjúkrabíl.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert