Lögreglan rannsakar líkamsleifarnar

Líkamsleifarnar fundust í Faxaflóa og birtust í veiðarfærum fiskibáts.
Líkamsleifarnar fundust í Faxaflóa og birtust í veiðarfærum fiskibáts. Kort/Map.is

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar líkamsleifar sem fundust á Faxaflóa nýverið, en upphaf málsins má rekja til veiða fiskibáts á norðanverðum Faxaflóa í síðasta mánuði.

Báturinn lagði út veiðarfæri á töluverðu dýpi, en þegar dregið var inn reyndust líkamsleifar fylgja með í netinu, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þá segir, að skipstjórinn hafi skráð niður staðsetninguna og hafði samband við Vaktstöð siglinga sem upplýsti lögreglu um málið.

Líkamsleifar reyndust vera á sjávarbotninum

„Í framhaldinu var skipulagt leitarsvæði og síðan var haldið á vettvang nokkru síðar með búnað sem hæfði aðstæðum, en um flóknar aðgerðir var að ræða. Sérútbúinn kafbátur var sendur niður til að taka ljósmyndir og sónarmyndir, en á sjávarbotninum reyndust vera líkamsleifar. Ekki reyndist unnt að ná þeim upp að svo stöddu enda aðstæður á vettvangi erfiðar, m.a. vegna sjólags og dýpis. Menn urðu því frá að hverfa og sæta færis, en nokkrum dögum síðar var aftur haldið á vettvang og þá tókst að ná upp líkamsleifunum. Við það var notaður annar kafbátur, sem var sömuleiðis sérútbúinn fyrir verkefni af þessu tagi,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Umfangsmiklar aðgerðir við að endurheimta líkamsleifarnar

„Ekki liggur fyrir af hverjum líkamsleifarnar eru og víst að það mun taka einhvern tíma að leiða það í ljós. Sá hluti málsins er í höndum kennslanefndar ríkislögreglustjóra, en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun ekki tjá sig frekar um málið á meðan sú niðurstaðan liggur ekki fyrir. Aðgerðirnar við að endurheimta líkamsleifarnar voru umfangsmiklar, en við þær naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu góðrar aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslunnar, Teledyne og Árna Kópssonar,“ segir ennfremur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert