Segir stjórnendur Arion óttast umræðuna

mbl.is/Eggert

Vogunarsjóðirnir munu bíða færis, þeir munu bíða þess að storminn lægi, þeir munu greiða út arð og þeir munu selja Valitor. Þökk sé ríkisstjórninni sem var eins og höfuðlaus her í þessari baráttu og gaf frá sér eina vopnið sem þeir áttu, hlutabréf ríkisins.

Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins.
Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins. Ljósmynd/Aðsend

Þetta sagði Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, á Alþingi í dag í umræðum um störf þingsins. Gerði hann að umtalsefni sínu aðalfund Arion banka í síðustu viku þar sem tvennt athyglisvert hefði gerst að hans mati. Fyrir það fyrsta hefði verið tekin ákvörðun um að greiða ekki út arð og í annan stað að hætta við að selja Valitor út úr samstæðunni.

„Hvað þýðir það? Jú, þar með staðfestu þeir það sem Miðflokkurinn sagði allan tímann að þeir ætluðu að selja Valitor um leið og þeir væru búnir að ná bréfum ríkisins á undirverði. Þetta eru mikil tíðindi. Fyrir þessu er bara ein ástæða. Ótti stjórnenda bankans við þá umræðu sem hefur farið fram hér í þingsal, barátta Miðflokksins í málefnum Arion banka og ótti við flótta viðskiptamanna úr bankanum,“ sagði Birgir ennfremur.

„Miðflokkurinn dró upp skýra mynd af áformum vogunarsjóða um að véla með eignir bankans til að hámarka eigin gróða og sjá til þess að ríkissjóður fengi sem minnst. Miðflokkurinn benti einnig á leiðir sem hægt væri að fara til þess að koma í veg fyrir að bréf ríkisins í bankanum yrðu seld á undirverði. Á það var ekki hlustað.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert