Áskorun um að beita hlutarfjáreign

Launafólk er hluthafar í fyrirtækjum.
Launafólk er hluthafar í fyrirtækjum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Afls – starfsgreinafélags sendi frá sér ályktun í kjölfar stjórnarfundar seinni partinn í gær.

Í ályktuninni kemur m.a. fram að stjórnin skori á lífeyrissjóði Alþýðusambandsfélaga að beita hlutafjáreign sinni í hlutafélögum til þess að koma í veg fyrir stjórnlausa sjálftöku stjórnenda fyrirtækjanna.

Í ályktun Afls – starfsgreinafélags kemur fram að lífeyrissjóðakerfið sé orðið stór eigandi fyrirtækja landsins og það sér því eðlilegt að sjónarmið eigenda lífeyrisréttinda komi sterklega fram á aðalfundum fyrirtækjanna ekki síður en sjónarmið annarra fjármagnseigenda, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert