Fyrsti vinningur gekk ekki út í Víkingalottóinu í kvöld en í pottinum voru um 3,2 milljarðar króna.
Tveir heppnir miðahafar fengu annan vinning og fá þeir hvor um sig rúmar 17 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Danmörku og í Noregi.
Enginn hlaut þriðja vinning og enginn var heldur með 5 jókertölur réttar í réttri röð.
Fjórir hér á landi voru með fjórar jókertölur réttar í réttri röð og fær hver um sig 100 þúsund krónur í sinn hlut.
Miðarnir voru keyptir í Olís á Egilsstöðum og Bitahöllinni í Reykjavík, auk þess sem tveir miðar voru keyptir í áskrift.
Vinningstölurnar: 4-10-17-21-32-41
Víkingatalan: 6
Jókertölurnar: 7-8-6-2-2