Áhöldin voru afhent án tollafgreiðslu

Matvælastofnun gaf ekki út leyfi og frétti ekki af innflutningi …
Matvælastofnun gaf ekki út leyfi og frétti ekki af innflutningi landbúnaðaráhaldanna fyrr en ári síðar. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Matvælastofnun hefur kært til lögreglu meint brot á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Í tilvikinu sem um ræðir voru flutt inn notuð landbúnaðaráhöld frá Danmörku og þau afhent kaupanda án tollafgreiðslu, samkvæmt fréttatilkynningu frá Matvælastofnun.

Er notuð landbúnaðaráhöld eru flutt inn verður að vera sannað að ekki berist smitefni með þeim sem valdið geti dýrasjúkdómum. Stofnunin getur heimilað slíkan innflutning ef fullnægjandi sótthreinsun hefur átt sér stað, en í þessu máli fórst það fyrir af einhverjum ástæðum.

Matvælastofnun frétti ekki af innflutningnum fyrr en upp komst um málið hjá embætti tollstjóra í árslok 2017, einu ári eftir innflutninginn, en samkvæmt lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim er óheimilt að flytja til Íslands notuð landbúnaðartæki sem hafa verið í snertingu við dýr eða dýraafurðir nema með leyfi Matvælastofnunar.

Í fréttatilkynningu segir að innflutningur sem þessi sé litinn alvarlegum augum, en árið 2017 voru fluttar til Íslands 86 notaðar landbúnaðarvélar.

„Yfirleitt var tilkynnt um innflutninginn fyrirfram eins og vera ber en í öllum tilvikum fór fram úttekt og í flestum þeirra þurfti viðbótarþrif og sótthreinsun,“ segir í tilkynningu stofnunarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert