Tveir drengir kveiktu í blaðakassa við Víðilund á Akureyri í dag. Ekkert tjón varð vegna íkveikjunnar samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri.
Að sögn lögreglu sást til tveggja drengja sem forðuðu sér svo af svæðinu. Lögregla biður þá sem kunna að hafa upplýsingar um málið að hafa samband.