Landsþekktar kempur hvetja krakkana

Glódís Perla hvetur krakkana til að gera sitt besta í …
Glódís Perla hvetur krakkana til að gera sitt besta í prófinu. Ljósmynd/Kristinn Magnússon

Landsliðskonurnar Sara Björk Gunnarsdóttir, Fanndís Friðriksdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir eru meðal þeirra sem hvetja um 4.000 íslenska nemendur sem taka þátt í PISA könnuninni 2018 á tímabilinu 12.mars til 13.apríl.

Auk þeirra hvetja landsliðsmennirnir Alfreð Finnbogason, Hörður Björgvin Magnússon og Jón Daði Böðvarsson krakkana einnig til dáða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Áhersla hefur verið lögð á að skapa jákvætt viðhorf gagnvart þátttöku í skólunum og minna almennt á mikilvægi þess fyrir nemendurna sjálfa að standa sig vel í því sem þeir taka sér fyrir hendur og hvað metnaður í námi getur skilað þeim í framtíðinni.

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson, Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir aðstoðardagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV sendu einnig hvatningarskeyti en myndskeið með öllum hvatningunum má sjá hér.

„Það er skemmtilegt að sjá allt þetta frambærilega fólk leggja þessu verkefni lið og miðla hvetjandi skilaboðum til nemenda. Öll eiga þau sammerkt að hafa náð langt á sínu sviði og hafa sýnt að hugarfarið skiptir máli, hvort sem það er í íþróttum, tónlist eða öðru. Ég hvet nemendur til þess að taka þátt í PISA og gera sitt allra besta,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálamálaráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert