Árekstur.is leitar að vitnum að hörðum árekstri sem átti sér stað klukkan 13:30 í dag á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Stekkjarbakka.
Þar lentu fólksbifreið og sendibifreið saman.
Sérstaklega er óskað upplýsinga um stöðu umferðarljósa við gatnamótin þegar áreksturinn varð.
Vitni eru beðin að hafa samband við Árekstur.is í síma 578-9090 eða með tölvupósti á arekstur@arekstur.is.