Óvenjuleg lykt í íshelli í Breiðamerkurjökli

Aðstæður í íshellum geta verið varasamar. Myndin er úr safni.
Aðstæður í íshellum geta verið varasamar. Myndin er úr safni. mbl.is/RAX

Veðurstofu Íslands barst í dag tilkynning um óvenjulega lykt við íshelli í Breiðamerkurjökli sem kallast Kristallinn. Veðurstofan varar við ferðum um íshellinn, a.m.k. þar til frekari upplýsingar liggja fyrir.

Fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofunni, að ferðaþjónustuaðilar sem hafi verið að kanna aðstæður við íshellinn hafi greint frá því að lyktin hafi verið sterkari seinni part dags og að gasmælir hafi varað við súrefnisleysi inni í hellinum. Þeir ákváðu að yfirgefa staðinn í framhaldinu.

„Búið er að gera lögreglu viðvart og hafa starfsmenn Vatnajökulsþjóðgarðs haft samband við alla ferðaþjónustuaðila á svæðinu varðandi málið. Ekki er vitað hvaða lofttegund veldur mengun á svæðinu eða hver uppruni hennar er, en Veðurstofan í samstarfi við lögregluna á Suðurlandi stefnir að því að gera mælingar á svæðinu á morgun,“ segir í tilkynningu. 

Breiðamerkurjökull.
Breiðamerkurjökull. Kort/Map.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert