Unnið að björgun eftir að vinnuvél valt

Vinnuvél valt við bóndabæ skammt utan Hvolsvallar fyrr í kvöld og hefur mjög fjölmennt lögreglu- og sjúkralið verið kallað út að bænum. Þar eru menn nú að athafna sig við björgun, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi.

Ekki hafa fengist frekari upplýsingar að svo stöddu.

Uppfært 23.30:

Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú komin á vettvang. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var hún kölluð þangað út til að sækja slasaðan mann.

Uppfært:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert