Áfram unnið að rannsókn mannsláts

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Ótímabært er að segja til um hvort að mannslátið á Suðurlandi sem tilkynnt var um í morgun hafi borið að með saknæmum hætti. 

Þetta staðfestir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, í samtali við mbl.is. Hann segir að rannsókn málsins standi enn yfir og að búið sé að hafa samband við flesta aðstandendur hins látna, eða alla nema einn. 

Lög­regl­unni á Suður­landi barst á ní­unda tím­an­um í morg­un til­kynn­ing um að maður væri lát­inn í heima­húsi í Árnes­sýslu. Til­kynn­and­inn sjálf­ur, ásamt öðrum manni sem einnig var á vett­vangi, eru nú í haldi lög­regl­unn­ar vegna rann­sókn­ar máls­ins.

Greint var frá því á Vísi Lögregla hefði girt af sveitabæ í Biskupstungum og að lögreglulið sé að störfum á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert