Rannsaka mannslát

mbl.is

Lögreglunni á Suðurlandi barst á níunda tímanum í morgun tilkynning um að maður væri látinn í heimahúsi í Árnessýslu.

 Lögregla og sjúkralið fór þegar á vettvang og staðfestist þá það sem um var tilkynnt. Tilkynnandinn sjálfur, ásamt öðrum manni sem einnig var á vettvangi, eru nú í haldi lögreglunnar vegna rannsóknar málsins.

Tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi við rannsókn málsins, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Í tilkynningunni kemur ennfremur fram að ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar um málið að sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert