Mál stuðningsfulltrúa til ákærumeðferðar

Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 19. janúar sl. og tólf …
Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 19. janúar sl. og tólf vikna frestur til að gefa út ákæru á hendur honum rennur út í lok næstu viku. mbl.is/Golli

Lögregla hefur lokið rannsókn í máli karlmanns á fimmtugsaldri sem sakaður er um að hafa beitt börn grófu kynferðisofbeldi, en hann starfaði sem stuðningsfulltrúi hjá Reykjavíkurborg. Maðurinn er grunaður um kynferðisbrot gegn minnst sjö börnum á tíu ára tímabili.

Málið var sent til embættis héraðssaksóknara til ákærumeðferðar fyrir páska, samkvæmt Huldu Elsu Björgvinsdóttur á ákærusviði lögreglunnar, sem RÚV ræddi við.

Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari staðfestir við mbl.is að mál sakbornings sem sætir gæsluvarðhaldi vegna gruns um kynferðisbrot gegn börnum hafi borist embættinu til meðferðar.

Hún segir tólf vikna frest til að gefa út ákæru renna út í lok næstu viku, en samkvæmt lögum um meðferð sakamála er ekki heimilt að láta sakborning sæta gæsluvarðhaldi lengur en í tólf vikur nema mál hafi verið höfðað gegn honum eða brýnir rannsóknarhagsmunir krefjist þess.

Þann 21. mars sl. staðfesti Landsréttur úrskurð héraðsdóms frá 16. mars um að maðurinn skyldi sæta gæsluvarðhaldi til 13. apríl næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert