Nýr viti rís við Sæbraut

Framkvæmdir við nýjan vita við Sæbraut skammt frá Höfða eru hafnar. Til þess að koma honum fyrir þarf að gera landfyllingu á svæðinu en þar mun einnig verða áningarstaður fyrir vegfarendur. Nýi vitinn kemur í stað þess í Sjómannaskólanum sem hefur um árabil verið í hvarfi vegna nýrra bygginga.

Vinna við landfyllingu er hafin eins og má sjá í myndskeiðinu en þar er einnig hægt að sjá hvernig svæðið kemur til með að líta út eftir að framkvæmdum lýkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert