Meta eigi störf ljósmæðra að verðleikum

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ræðir við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ræðir við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að vinnuframlag og starf ljósmæðra sé sérstaklega mikilvægt. Þarna er um að ræða kvennastétt sem sinnir konum á gríðarlega dýrmætum og mikilvægum tíma í lífi þeirra og mér finnst að það eigi að meta að verðleikum.“

Þetta sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra á Alþingi í dag í svari við fyrirspurn frá Guðjóni S. Brjánssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, sem gerði kjarabaráttu ljósmæðra að umtalsefni sínu. Sagðist ráðherra þeirrar skoðunar að meta ætti vinnuframlag ljósmæðra til launa og til samfélagslegrar virðingar. 

Guðjón lýsti meðal annars áhyggjum af því að staðan í kjarabaráttu ljósmæðra, ekki síst uppsagnir þeirra, ylli mögulega ugg og óöryggi hjá fjölskyldum. Sagði Svandís enga ástæðu til þess að hafa áhyggjur í þeim efnum.

„Ég hef verið fullvissuð um það af forstjóra Landspítalans að engu öryggi sé stefnt í uppnám á Landspítalanum enda umgangast ljósmæður vinnustað sinn af fullri ábyrgð. Þannig er engin ástæða til þess, hvorki hjá háttvirtum þingmanni né öðrum, að kynda undir ugg eða óöryggi hjá foreldrum.“

Ráðherra sagðist hafa beitt sér í málinu í gegnum forstjóra Landspítalans til að freista þess að gera það sem hægt væri til þess að bæta starfsumhverfi og mögulega vaktaumhverfi ljósmæðra.

„Það hefur verið gert og því hefur verið spilað inn í þær kjaraviðræður sem nú eru í gangi. Ég vonast til þess að það verði til þess að hjálpa til við að leysa þessa viðkvæmu deilu. Eins og væntanlega landsmenn allir vonast ég til þess að fundurinn 16. apríl verði árangursríkur.“

Þá sagði Svandís að skýringin á því að ljósmæður væru með lægri laun en hjúkrunarfræðingar væri sú að þær væru í stéttarfélagi sem væri hluti af BHM á meðan hjúkrunarfræðingar væru í eigin félagi. Það væri hins vegar ekki stjórnvalda að hafa skoðun á því fyrirkomulagi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert