Sigurður ákærður vegna reksturs SS húsa

Héraðssaksóknari gaf út ákæru í málinu
Héraðssaksóknari gaf út ákæru í málinu mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Embætti héraðssaksóknara hefur ákært Sigurð Kristinsson, fyrrverandi eiganda verktakafyrirtækisins SS hús og tvo aðra í tengslum við rekstur félagsins. Eru þau ákærð fyrir meiri háttar skattalagabrot. Sigurður er eiginmaður Sunnu Elviru Þorkelsdóttur.

Ásamt Sigurði er tengdamóðir hans og móðir Sunnu, sem vann sem bókari og var stjórnarformaður félagsins, ákærð í málinu. Þá er arftaki Sigurðar sem stjórnandi félagsins einnig ákærður.

Ákæran hefur ekki verið birt sakborningum og fæst því ekki afhend hjá ákæruvaldinu, en þingfesting málsins er 30. apríl. Í byrjun febrúar greindi Fréttablaðið frá því að félagið væri til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra og að meint undanskot eigna hlypu á hundruðum milljóna. Þá væri einnig til rannsóknar mikil vanskil vörsluskatta.

Sigurður er í haldi lögreglunnar hér á landi grunaður um fíkniefnainnflutning í tengslum við Skáksambandsmálið sem kom upp í janúar. Var Sigurður þá staddur á Spáni og slasaðist Sunna stuttu seinna og lamaðist á heimili þeirra þar í landi. Kom Sigurður hingað til lands í framhaldinu og var handtekinn. Áformað er að Sunna komi hingað til lands síðar í dag með sjúkraflugi, en mál hennar hefur tekið langan tíma í meðförum lögreglunnar á Spáni sem fyrst hneppti hana í farbann en aflétti því síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert