Saka ráðherra um „kaldar kveðjur“

mbl.is/Eggert

Staðan í kjaraviðræðum ljósmæðra við ríkið er alfarið á ábyrgð stjórnvalda sem hafa hafnað því að koma til móts við sjálfsagðar og eðlilegar kröfur ljósmæðra,“ segir í yfirlýsingu frá Ljósmæðrafélagi Íslands (LMFÍ) og Bandalgi háskólamanna (BHM) þar sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra er harðlega gagnrýnd fyrir ummæli sem hún lét falla í umræðum á Alþingi sem fram fóru í gær.

„Í fyrirspurnatíma á Alþingi í gær lét heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, orð falla sem skilja má sem svo að hún telji að ljósmæður geti sjálfum sér um kennt að þær lækki í launum við að bæta við sig námi. Þessa stöðu megi rekja til þess að ljósmæður hafi valið að vera í sérstöku stéttarfélagi innan BHM. Ráðherrann gaf í skyn að hagsmunum ljósmæðra yrði betur borgið ef Ljósmæðrafélag Íslands, sem var stofnað árið 1919, yrði lagt niður og ljósmæður sæktu um aðild að Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.“

Félögin lýsa undrun og vanþóknun á ummælunum í yfirlýsingu sinni. „Það blasir við öllum sem það vilja sjá að fullkomlega óeðlilegt er að ljósmæður lækki í launum við það að bæta við sig tveggja ára ströngu háskólanámi ofan á hjúkrunarfræðinám. Fráleitt er að rökstyðja eða réttlæta slíka launalækkun með vísan til þess að ljósmæður hafi valið að vera í sérstöku stéttarfélagi innan heildarsamtaka háskólamenntaðra á íslenskum vinnumarkaði.“ Fram kemur að ummælin séu kaldar kveðjur til ljósmæðra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert