Ábendingar hafa ekki leitt til þýfisins

Gagnaver Advania í Reykjanesbæ þar sem hluta búnaðarins var stolið
Gagnaver Advania í Reykjanesbæ þar sem hluta búnaðarins var stolið vb.is/Hilmar Bragi

„Við fáum alltaf ábendingar en þær hafa nú ekki leitt til þess að við höfum fundið tölvubúnaðinn ennþá, því miður,“ segir Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum. Frestur til að senda inn ábendingu um staðsetningu tölvubúnaðarins, sem stolið var úr gagnaveri á Suðurnesjum, gegn 6 milljóna króna fundarlaunum, rann út á miðnætti í gær.

Ólafur segir að lögreglunni hafi borist á þriðja tug ábendinga um málið en að engin þeirra hafi leitt að tölvunum.

Hann segir það verða skoðað í dag hvort fundarlaun bjóðist fyrir ábendingar sem berast héðan í frá. Væntanlega séu það eigendur tölvubúnaðarins sem muni taka afstöðu til þess, en það eru þeir sem bjóða fundarlaunin.

Ólafur jánkar því að í raun séu þeir engu nær um staðsetningu búnaðarins, sem er metinn á um 200 milljónir króna. „Það er búið að leggja mikinn kraft í rannsóknina og við getum skapað okkur ákveðna mynd af þessu öllu, nema hvað við vitum ekki hvar þýfið er.“

Einn maður sem handtekinn var vegna málsins er enn í haldi lögreglu og sætir síbrotagæslu. Gæsluvarðhaldið rennur út þann 16. apríl en formleg ákvörðun hefur ekki verið tekin um hvort það verður framlengt.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert