Gasleki líklega orsök elds í Hellisheiðarvirkjun

Eldurinn kviknaði laust fyrir hádegi 12. janúar.
Eldurinn kviknaði laust fyrir hádegi 12. janúar. mbl.is/Hanna

Niðurstöður rannsóknar á upptökum elds sem upp kom í loftinntaksrými í Hellisheiðarvirkjun í vetur liggja nú fyrir. Líklegast er að kviknað hafi í út frá eldfimu jarðhitagasi sem lekið hafði úr gaslögn og neisti, mögulega vegna stöðurafmagns, komið brunanum af stað.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orku náttúrunnar.

Þar segir ennfremur, að þessi niðurstaða Mannvirkjastofnunar og lögreglu sé í samræmi við mat starfsfólks ON fljótlega eftir brunann. Fyrirtækið hafi þegar gripið til viðeigandi ráðstafana til að slíkt endurtaki sig ekki.

„Þær fela meðal annars í sér að gaslagnir sem um ræðir hafa verið aftengdar og verið er að fara yfir hönnun og frágang þeirra hluta virkjana fyrirtækisins þar sem aðstæður eru svipaðar. Þá mun ON upplýsa önnur jarðhitafyrirtæki um þessar niðurstöður til að fleiri geti lært af,“ segir í tilkynningu ON.

Tjón varð á hluta þaks stöðvarhússins

Eldurinn kviknaði laust fyrir hádegi 12. janúar. Engan sakaði og sameiginlegar æfingar starfsfólks ON, Brunavarna Árnessýslu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins skiluðu sér í slökkvistarfinu.

„Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins og brunahólfun og vel frágengnar brunaþéttingar takmörkuðu útbreiðslu. Áhrif á orkuvinnsluna voru lítil. Einkum varð tjón á hluta þaks stöðvarhússins og skipta þarf um hluta burðarvirkis þess. ON er tryggt fyrir tjóninu en sjálfsábyrgð tryggingarinnar nemur sem svarar til 100 milljóna króna. Viðgerðum er ekki að fullu lokið og tjónið ekki verið gert upp,“ segir í tilkynningunni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert