Aspir bundu mikið kolefni

Brynhildur Bjarnadóttir og Bjarni Diðrik Sigurðsson settu upp mælitækin. Asparskógurinn …
Brynhildur Bjarnadóttir og Bjarni Diðrik Sigurðsson settu upp mælitækin. Asparskógurinn í Sandlækjarmýri er um 85 hektarar. Ljósmynd/Bjarki Þór Kjartansson

Aldarfjórðungsgamall asparskógur í Sandlækjarmýri í Skeiða- og Gnúpverjahreppi batt yfir 20 tonn af koltvísýringi á hektara á ári. Þetta sýna rannsóknir sem gerðar voru frá október 2014 til október 2016.

Bjarki Þór Kjartansson, sérfræðingur á Mógilsá, greindi frá verkefninu Mýrviði og loftslagsáhrifum skógræktar á framræstu mýrlendi á fagráðstefnu skógræktar sem haldin var 11. og 12. apríl. Brynhildur Bjarnadóttir við Háskólann á Akureyri, Bjarni Diðrik Sigurðsson við Landbúnaðarháskóla Íslands auk Bjarka, sem vinnur hjá Skógræktinni, unnu að rannsókninni.

„Þessi mikla binding kom okkur á óvart,“ segir Bjarki í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert