58 vanfóðraðar kindur aflífaðar

Á þessum árstíma eru ær á síðari hluta meðgöngu, fóstrin …
Á þessum árstíma eru ær á síðari hluta meðgöngu, fóstrin taka mikið til sín og því er fóðurþörf mikil og ekki síst eftir burð til að framleiða mjólk. Mynd úr safni. mbl.is/Sigurður Bogi

Dýraheilbrigði Matvælastofnun hefur svipt sauðfjárbónda á Austurlandi hluta fjár hans. Féð var illa á sig komið vegna vannæringar og ekki hugað líf. Alls 58 vanfóðraðar kindur voru aflífaðar í aðgerðum stofnunarinnar sl. föstudag.

Undanfarin ár hefur Matvælastofnun ítrekað haft afskipti af búskap bóndans sökum margvíslegrar vanhirðu. Í vetur hefur náið eftirlit verið haft með býlinu, að því er segir á vef MAST.

Þá segir, að við eftirlit stofnunarinnar í mars höfðu kröfur stofnunarinnar um úrbætur ekki verið virtar og ástand versnað. Þriðjungur fjárins sem var holdastigað reyndist vannærður (holdastig 1,5 eða neðar af 5 á holdastigunarkvarða en 2-4 telst viðunandi eða gott). Ástæða vannæringar er vanfóðrun og léleg heygæði.

„Ljóst var að margar kindur höfðu orðið fyrir varanlegum skaða og að þeim yrði ekki bjargað. Við mat á niðurstöðum holdastigunar þarf að taka tillit til aldurs, meðgöngu og árstíma,“ segir MAST.

Þá kemur fram, að að þessum árstíma séu ær á síðari hluta meðgöngu, fóstrin taki mikið til sín og því sé fóðurþörf mikil og ekki síst eftir burð til að framleiða mjólk. Af þessum ástæðum komi vannæring hratt fram og erfitt að snúa þeirri þróun við.

Áfram verður unnið að úrbótum fyrir féð sem eftir lifir á bænum og eru frekari aðgerðir fyrirhugaðar síðar í mánuðinum með það að markmiði að tryggja velferð fjárins eins og kostur er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert