Skólarúta og vörubíll rákust saman

mbl.is/Ófeigur

Tvö börn hlutu smávægileg meiðsli þegar skólarúta og vörubíll rákust saman við Kórinn í Kópavogi.

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um slysið klukkan 14.10.

Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang en fyrri bíllinn afturkallaði þann síðari.

Að sögn slökkviliðsins er sjúkrabíllinn enn á staðnum. Á þriðja tug barna voru í skólarútunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert