Bjóða áfram 6 milljóna fundarlaun

Gagnaver Advania í Reykjanesbæ þar sem hluta búnaðarins var stolið.
Gagnaver Advania í Reykjanesbæ þar sem hluta búnaðarins var stolið. vb.is/Hilmar Bragi

Eigendur tölvubúnaðar sem stolið var úr gagnaveri á Suðurnesjum fyrr á árinu heita áfram 6 milljónum íslenskra króna í fundarlaun til þess sem getur veitt áreiðanlegar upplýsingar um hvar búnaðinn er að finna.

Frestur til að koma ábendingum um búnaðinn hefur verið framlengdur um tvær vikur, eða til 2. maí. Þeir sem búa yfir upplýsingum um málið eru hvattir til að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 832-0253. 

Ólaf­ur Helgi Kjart­ans­son, lög­reglu­stjóri á Suður­nesj­um, sagði í samtali við mbl.is  fyrir helgi að lögreglan sé í raun engu nær um staðsetn­ingu búnaðar­ins, sem er met­inn á um 200 millj­ón­ir króna.

Einn maður er í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Gæsluvarðhald yfir honum var framlengt í gær, en hann strauk úr fang­els­inu að Sogni í nótt. 

Frétt mbl.is: Staðfest að strokufanginn sé farinn úr landi

Í tilkynningu kemur fram að fundarlaunin verða greidd til þess sem lögreglyfirvöld staðfesta að hafi fyrstur komið á framfæri ábendingu um hvar búnaðinn er að finna. Gætt verður fyllsta trúnaðar við þá sem veita lögreglu upplýsingar um málið. Lögfræðistofa sem fer með málið fyrir hönd eigenda búnaðarins sér um að annast greiðslu fundarlauna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert