Lögreglan lýsir eftir Jóhanni Friðfinni

Jóhann Friðfinnur Sigurðsson.
Jóhann Friðfinnur Sigurðsson. Ljósmynd/Aðsend

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóhanni Friðfinni Sigurðssyni, 53 ára, til heimilis að Mánatúni 2 í Reykjavík. Ekkert er vitað um ferðir hans frá því í gærmorgun.

Talið er mögulegt að hann hafi þá verið á ferðinni í Áslandshverfinu í Hafnarfirði, eða á þeim slóðum. Jóhann Friðfinnur, sem er 185 sentimetrar á hæð, er þreklega vaxinn og með skollitað hár. Hann er klæddur í bláar gallabuxur, svarta, þunna úlpu og gráa Skechers-íþróttaskó.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Jóhanns Friðfinns, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögreglu í síma 112.

Uppfært klukkan 00:10:

Jóhann Friðfinnur er fundinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert