Strokufangi í sama flugi og Katrín

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Hari

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var í sama flugi og Sindri Þór Stefánsson sem strauk úr fangelsinu að Sogni í nótt.

RÚV greinir frá þessu.

Katrín flaug til Svíþjóðar í morgun vegna leiðtogafundar Norðurlandanna og forsætisráðherra Indlands.

Einn farþegi í fluginu sagðist í samtali við RÚV ekki hafa tekið eftir neinu óvenjulegu í fluginu, nema því að Katrín hafi verið á almennu farrými.

Á Twitter-síðu Katrínar er sagt frá fundi hennar með Shri Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert