17 ára tekin með fíkniefni

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Lögreglan hafði afskipti af 17 ára gamalli stúlku sem var farþegi í bifreið sem stöðvuð var á fjórða tímanum í nótt. Stúlkan er grunuð um vörslu fíkniefna. Málið afgreitt af hálfu lögreglunnar með aðkomu móður stúlkunnar og tilkynningu til Barnaverndar.

Á áttunda tímanum handtók lögreglan ölvaða konu í Skeifunni en hún er grunuð um þjófnað/hnupl og eignaspjöll. Konan vildi ekki aðspurð gefa lögreglu nafn sitt eða kennitölu og var hún því vistuð fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.

Tilkynnt var um innbrot í verslun við Faxafen í nótt en ekki er vitað hverju var stolið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert