Fjölbreyttari úrræði fyrir gerendur í ofbeldismálum

mbl.is/G.Rúnar

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur skipað starfshóp sem meðal annars er falið að kortleggja og skilgreina þjónustuþörf fyrir gerendur í ofbeldismálum og þá sem eru í hættu á að fremja ofbeldisbrot. Hópnum er ætlað að skila ráðherra niðurstöðum sínum 1. nóvember.

Þetta kemur fram á

<a href="https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2018/04/18/Starfshopur-um-fjolbreyttari-urraedi-fyrir-gerendur-i-ofbeldismalum/" target="_blank">vef Stjórnarráðsins.</a>

Velferðarráðuneytið hefur undanfarin misseri leitt vinnu við gerð aðgerðaáætlunar gegn ofbeldi í samfélaginu með fulltrúum dómsmálaráðherra, félags- og jafnréttismálaráðherra, heilbrigðisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra. Í því starfi hefur meðal annars verið kallað eftir fjölbreyttari meðferðarúrræðum fyrir gerendur í ofbeldismálum, að því er segir í tilkynninguni.

„Í ljósi þessa og umræðunnar sem átt hefur sér stað í samfélaginu um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi og áreitni ákvað ráðherra að skipa starfshópinn. Hópnum er ætlað að gera tillögur um viðeigandi úrræði og jafnframt um það hvernig megi efla forvarnir og fræðslu til að koma í veg fyrir ofbeldisbrot. Starfshópurinn skal hafa samráð við velferðarþjónustu sveitarfélaganna og eftir atvikum aðra sérfræðinga á þessu sviði.“

Formaður starfshópsins er Anna Kristín Newton.

Aðrir nefndarmenn eru:

  • Andrés Proppé Ragnarsson, tilnefndur af Heimilisfriði
  • Kristín Einarsdóttir, tilnefnd af dómsmálaráðuneytinu
  • Ingigerður Jenný Ingudóttir, tilnefnd af Embætti landlæknis
  • Sigurður Páll Pálsson, tilnefndur af Landspítala
  • Ragna Björg Guðbrandsdóttir, tilnefnd af Bjarkarhlíð
  • Gísli Rúnar Pálmason, tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðuneytinu
  • Birna Guðmundsdóttir, tilnefnd af Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
  • Böðvar Einarsson, tilnefndur af Fangelsismálastofnun
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert