Guðlaugur Þór fundaði í Stokkhólmi

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ásamt Timo Soini, Margot Wallström og …
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ásamt Timo Soini, Margot Wallström og Ine Marie Eriksen Søreide, utanríkisráðherrum Finnlands, Svíþjóðar og Noregs Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins, sem fer fram í júlí, og helstu málefni á alþjóðavettvangi voru á meðal umræðuefna utanríkisráðherra Norðurlandanna sem lauk í Stokkhólmi fyrir stundu. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sat fundinn þar sem málefni Sýrlands komu meðal annars til umræðu.

Haft er eftir utanríkisráðherra í tilkynningu, að Norðurlöndin sé mjög samstíga í nálgun sinni gagnvart Sýrlandi og þeim takmörkuðu aðgerðum sem Bandaríkin, Bretland og Frakkland hafi ráðist í um síðustu helgi.

„Öll erum við sammála um að hin endanlega lausn á málum í Sýrlandi verði aðeins leyst með pólitískum og diplómatískum hætti, en við vorum sömuleiðis öll sammála um að beiting efnavopna sé óásættanleg og hljóti að hafa afleiðingar í för með sér," segir Guðlaugur Þór í tilkynningunni.

Einnig voru öryggismál á norðanverðu Atlantshafi og í Eystrasaltinu, þróun mála í Evrópu, norðurslóðamál og samskiptin vestur um haf til umfjöllunar.

Haft er eftir ráðherra, að öll ríkin eigi sína tvíhliða hagsmuna að gæta gagnvart Bandaríkjunum, en Norðurlöndin hafi einnig á umliðnum árum nálgast valdhafa í Washington sem ein norræn heild með góðum árangri.

„Við finnum að Norðurlöndin og framlag okkar á ólíkum sviðum alþjóðastjórnmálanna er vel metið í Bandaríkjunum og við getum nýtt okkur það og almennt gott aðgengi að bandarískum ráðamönnum.“

Utanríkisráðherra átti einnig tvíhliða fund með Margot Wallström, utanríkisráðherra Svíþjóðar, þar sem jafnréttismál, þróunarsamvinna, málefni Norðurlandanna og Sameinuðu þjóðanna, sem og staða mála í Sýrlandi voru meðal umfjöllunarefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert