Hætta á skriðuföllum

Veðurstofa Íslands

Spáð er talsverðri rigningu suðaustan til á landinu í dag en í gildi eru gular viðvaranir á Suðaustur- og Austurlandi. Snjóbráðnun eykur á vatnsrennsli og má búast við auknu rennsli í ám og lækjum. Þessu geta fylgt auknar líkur á skriðuföllum á svæðinu.

„Suðaustanstrekkingur í dag, rigning og milt en víða bjartviðri norðan heiða.
Hægari vindur á morgun, sumardaginn fyrsta, og dálítil væta öðru hverju á Suður- og Vesturlandi annars þurrt að kalla og sæmilega hlýtt áfram. Litlar breytingar á föstudag, dálítil súld fyrir norðan og líkur á skúrum suðvestanlands, en á laugardag fer væntanlega aftur að rigna, fyrst suðaustan til á landinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Suðaustanátt, víða 8-15 m/s. Bjart með köflum N- og NA-lands, annars rigning, einkum um landið SA-vert. Hægari á morgun og dálítil væta á S- og V-landi, en þurrt að kalla í öðrum landshlutum. Hiti 6 til 14 stig að deginum.

Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti):
Austan 3-8 m/s og víða bjartviðri N-lands, annars skýjað og sums staðar dálítil rigning á S-verðu landinu. Hiti 5 til 12 stig. 

Á föstudag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt. Súld með köflum norðan heiða, en stöku skúrir SV-lands. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast á SA-landi. 

Á laugardag:
Austlæg átt og fer að rigna, fyrst SA-lands, en þurrt fram á kvöld á N- og V-landi. Hiti 3 til 10 stig, mildast S- og SV-lands. 

Á sunnudag:
Norðaustlæg átt og rigning, en úrkomulítið S- og V-lands. Hiti breytist lítið. 

Á mánudag:
Norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum S-lands, annars skýjað en úrkomulítið. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast á S-landi. 

Á þriðjudag:
Austlæg átt, skýjað og dálítil væta á S-verðu landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert