Lögreglan lýsir eftir Benedikt Má

Benedikt Már.
Benedikt Már. Ljósmynd/Aðsend

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Benedikt Má. Benedikt Már er 17 ára, um 175 cm  á hæð, grannur en sterkbyggður með ljósskollitað stutt hár. 

Hann er talinn vera í svörtum buxum, grárri peysu og svörtum skóm. 

Ljósmynd/Aðsend

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Benedikts Más síðan í gær, eða vita hvar hann er, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 112.

Í tilkynningu frá lögreglunni er athygli vakin á því að það er refsivert að aðstoða eða stuðla að því að barn komi sér undan forræði foreldra sinna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert