Sníkjudýrarannsókn, sem framkvæmd var af Karli Skírnissyni, dýrafræðingi við Tilraunastöðina á Keldum, staðfestir að þvottabjörninn sem drepinn var í Höfnum á Reykjanesi 20. mars síðastliðinn var birna, villt að uppruna og komin frá Bandaríkjum Norður-Ameríku.
Uppruni dýrsins fékkst staðfestur með greiningu sníkjudýra sem fundust í því og aðeins finnast í þvottabjörnum á útbreiðslusvæði tegundarinnar í Bandaríkjunum. Þá bendir fjölbreytt sníkjudýrafána sem fannst í dýrinu til þess að það hafi lifað villt áður en það lagði upp í ferðina til Íslands. Þá útiloki hin fjölbreytta sníkjudýrafána dýrsins að það hafi verið gæludýr því þau geti sjaldnast hýst önnur sníkjudýr en þau sem hafa beinan lífsferil.
Í dýrinu fundust 10 tegundir sníkjudýra. Fundust þau í maga, smáþörmum, ristli, saur og þvagblöðru. Þá segir í skýrslunni að frekari vefjarannsóknir muni leiða í ljós fleiri tegundir en þær tíu sem fyrrgreind rannsókn staðfesti. Sum sníkjudýrin sem fundust í dýrinu staðfestu að birnan hefði dagana eða vikurnar á undan smitast af þeim þegar hún hefur étið fiska, kuðunga og hugsanlega litla krabba eins og marflær sem hún náði að klófesta í fjöru á Íslandi.