Mokfiska steinbít undir Látrabjargi

Emil Freyr Emilsson, skipstjóri á Guðbjarti SH, mokar steinbítnum upp …
Emil Freyr Emilsson, skipstjóri á Guðbjarti SH, mokar steinbítnum upp í bátinn. Drjúgur tími fer í veiðar. mbl.isAlfons Finnsson

Margir þeirra línubáta sem gerðir eru út frá Snæfellsbæ hafa undanfarið róið undir Látrabjarg eftir steinbít og mokfiskað þar.

Andri Steinn Benediktsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar Snæfellsbæjar, segir bátana hafa sótt í steinbítsveiðarnar eftir að þorskveiðin fór í hrygningarstopp. Þó hafi nokkrir bátar hafið veiðarnar fyrr, vegna dræmrar veiði á þorski.

Í samtali við fréttaritara segir hann að ekki sé hátt verð á steinbítnum, en því veldur mikið framboð á litlum markaði. „Við höfum verið að selja steinbítinn slægðan á níutíu til hundrað krónur, en hann er allur slægður í landi hjá okkur,“ segir Andri og bætir við að sjómenn borgi 14 krónur fyrir slæginguna af hverju kílói, sem fari af verðinu til þeirra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert