Sigurður í fjögurra vikna farbann

Sigurður var handtekinn í janúar og hafði því verið í …
Sigurður var handtekinn í janúar og hafði því verið í haldi lögreglu í tólf vikur. mbl.is/Eggert

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað Sigurð Kristinsson, sem grunaður er um aðild að umfangsmiklu fíkniefnamáli, Skáksambandsmálinu svokallaða, í fjögurra vikna farbann, eða til 18. maí. Þetta er gert að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan greinir frá þessu í tilkynningu. Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur hafnað kröfu embættisins um tveggja vikna áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Sigurði á grundvelli almannahagsmuna, en gæsluvarðhald yfir manninum rann út í dag.

Sigurður var handtekinn í janúar og hafði því verið í haldi lögreglu í tólf vikur.

Rannsókn málsins, sem er á lokastigi og er m.a. unnin í samvinnu við spænsk yfirvöld, hefur verið tímafrek, en enn er beðið gagna erlendis frá. Sú gagnaöflun felur þó ekki í sér brýna rannsóknarhagsmuni að sögn lögreglu.

„Í málum sem þessum, þar sem sakborningur sætir gæsluvarðhaldi, er horft til þess að fullnægjandi rannsókn lögreglu sé lokið á tólf vikum. Það hefur ekki gengið eftir og ákæra hefur ekki verið gefin út. Tafir á rannsókn málsins mega teljast eðlilegar, m.a. vegna umfangs þess,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert