Heiðraði eldhuga í umhverfismálum

Dagur B. Eggertsson með eldhugunum sem sýnt hafa umhverfismálum mikinn …
Dagur B. Eggertsson með eldhugunum sem sýnt hafa umhverfismálum mikinn áhuga. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri heiðraði í dag nokkra eldhuga í umhverfismálum fyrir utan Ráðhús Reykjavíkur. Öll hafa þau sýnt frumkvæði að öflugu hreinsunarátaki í borginni að því er fram kemur í frétt á vef borgarinnar.

Tóku Plokk á Íslandi, feðgarnir Svavar Hávarðsson og Atli Svavarsson ásamt Örlygi Sigurjónssyni og Björgu Fríði Freyju á móti viðurkenningum fyrir framlag sitt við hreinsun borgarinnar.  

Þau Örlygur og Björg fengu viðurkenninguna fyrir hreinsun á landi og láði; en Örlygur hreinsar rusl um leið og hann fer í kajak ferðir á meðan að Björg stundar sjósund og grípur það sem á vegi hennar verður á sundinu.

Sagði Dagur frumkvæði eldhuganna vera smitandi og það sé stórkostlegt hversu mjög hafi fjölgað í hópi þeirra sem tína upp rusl í borginni.

Nú stendur yfir evrópsk hreinsunarvika sem Reykjavíkurborg tekur þátt í undir yfirskriftinni Hreinsum saman, tökum þátt og tínum rusl. Borgarstjóri tók þátt í átakinu í dag ásamt starfsfólki Reykjavíkur og hirti upp rusl í nágrenni við Tjörnina.  

Hápunktur vikunnar er laugardaginn 28. apríl en þá geta borgarbúar skráð sig á valin almenningsrými og nágrenni til að tína rusl. Starfsfólk borgarinnar sækir pokana sjái fólk sér ekki fært að koma þeim sjálft til endurvinnslustöðva Sorpu.

Laugardaginn 28. apríl verða enn fremur þrjár hverfastöðvar Reykjavíkurborgar opnar og skaffa áhugasömum plokkurum poka. Stöðvarnar eru á Njarðargötu, á Stórhöfða og í Jafnaseli. 

Borgarstjóri með feðgunum Svavari Hávarðssyni og Atla Svavarssyni.
Borgarstjóri með feðgunum Svavari Hávarðssyni og Atla Svavarssyni. Ljósmynd/Reykjavíkurborg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert