Karlmaður, sem sóttur var af þyrlu Landhelgisgæslunnar í Heimaklett í Vestmannaeyjum fyrr í kvöld eftir að hann hneig meðvitundarlaus niður, er látinn. Þetta staðfestir lögreglan í Eyjum.
Endurlífgunartilraunir voru gerðar á manninum á staðnum en án árangurs. Hann var fluttur á sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum þar sem hann var úrskurðaður látinn.
Maðurinn var í gönguferð með fleira fólki þegar hann hneig niður. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu en hann var heimamaður í Eyjum.