Missti meðvitund í Heimakletti

Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni að sækja karlmann sem missti meðvitund á svonefndri Hettu í Heimakletti í Vestmannaeyjum samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni. 

Uppfært 18:40: Maðurinn var fluttur með þyrlunni á sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum. Maðurinn var í gönguferð í Heimakletti ásamt fleira fólki þegar hann hneig niður samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert