Tilkynnt um eld í skipi

mbl.is/Eggert

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan hálfsex vegna elds í skipi í flotkví við Hafnarfjarðarhöfn. Tveir dælubílar voru sendir á staðinn og er unnið að því að slökkva eldinn.

Uppfært klukkan 19:21: 

Tekist hefur að finna upptök eldsins og hefur hann verið slökktur. Reykræsting stendur nú yfir. Alls komu ellefu slökkviliðsmenn og reykkafarar að slökkvistarfinu. Sjúkrabíll var einnig kallaður á vettvang. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert