Verður að ráðast að rót vandans

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flytur ræður sína í dag.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flytur ræður sína í dag. Ljósmynd/utanríkisráðuneytið

Meðal þess sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra gerði að umtalsefni sínu í ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í Bandaríkjunum í dag var staða mála í Sýrlandi og Jemen og ábyrgð öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

„Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna ber að tryggja frið, en er fyrirmunað að taka á aðkallandi málum. Öryggisráðið verður að gera betur og axla ábyrgð – þúsundir mannslífa eru í húfi,“ sagði Guðlaugur Þór í ræðu sinni. Ráðherrann ræddi einnig mikilvægi þess að ráðast að rótum vandans og að SÞ legðu aukna áherslu á að koma í veg fyrir átök.

„Það er til lítils að slökkva eldinn ef upptök hans eru enn þá fyrir hendi. Þá mun kvikna bál að nýju. Að ráðast að upptökum eldsins er skilvirkara, ódýrara og bjargar fleiri mannslífum,“ sagði Guðlaugur Þór enn fremur. „Sameinuðu þjóðirnar eru aldrei sterkari en aðildarríkin leyfa. Við, aðildarríkin, verðum að stíga upp og styðja við Sameinuðu þjóðirnar og störf framkvæmdastjórans.“

Ráðherrann átti einnig utanríkisráðherrafund með Ine Eriksen Søreide, utanríkisráðherra Noregs, þar sem þróun mála í Evrópu, framkvæmd EES-samningsins og útganga Bretlands úr Evrópusambandinu voru meðal umræðuefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert