Ákærður fyrir 27 nektar- og kynlífsljósmyndir

mbl.is/Ófeigur

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa tekið 27 ljósmyndir af konu sem sýna hana fáklædda eða nakta og sjö hreyfimyndir sem sýna þau stunda kynlíf.

Héraðssaksóknari gaf út ákæru á hendur manninum 5. apríl og var hún þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Vísað er í ákæruna í frétt RÚV þar sem segir að nektar- og kynlífsmyndirnar hafi verið teknar á tveggja ára tímabili, frá febrúar 2014 til september 2016. Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa ruðst í heimildarleysi inn á heimili konunnar í september 2016.

Í ákærunni segir einnig að maðurinn hafi sært blygðunarsemi konunnar með brotum sínum. Hún krefur hann um 1,2 milljónir króna í bætur fyrir brotið.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert