Fjórir með fjórar réttar í Jókernum

Enginn var með allar tölur réttar auk víkingatölu í útdrætti kvöldsins í Víkingalottó. Tveir Norðmenn og einn Svíi skiptu á milli sín öðrum vinningi og fær hver þeirra rúmlega 9,6 milljónir króna í sinn hlut. 

Einn var með hinn alíslenska þriðja vinning og hlýtur hann 1,4 milljónir króna. Miðinn var keyptur í í N1 í Borgartúni.

Þá voru fjórir með fjórar réttar tölur í Jóker og fá 100.000 krónur hver. Miðarnir voru keyptir í Lukku Láka í Mosfellsbæ og Lyfju Smáratorgi en tveir eru í áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert